Vörur
clipperskagen_1

Vinnubátar og skip

saeulfur2

Frístundabátar

Velkomin til Markus Lifenet ehf.

Markus Lifenet ehf. sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á maður fyrir borð björgunarvörum. Björgunarvörurnar eru hannaðar fyrir allar tegundir báta, skip, borpalla og hafnarsvæði, virkjanir, brýr og vatnasvæði af svipuðum toga. Við bjóðum einnig upp á æfingaráætlun og skoðunarleiðbeiningar.

Markus Lifenet björgunarvörur eru hannaðar fyrir verstu aðstæður á sjó, þegar maður hefur fallið útbyrðis. Aðalvara okkar er Markúsarnetið en það er eini búnaðurinn sem samþykktur er á heimsmarkaði, sem er fyrst og fremst hannaður sem handvirkur búnaður til að ná manni úr sjó og til að nota frá allt að 40 metra borðhæð til að koma manni í sjó nálægt skipshlið í öryggi. Markúsarnet eru einnig hönnuð fyrir notkun með krana eða léttum hífibúnaði.

Hjá okkur hafa einnig verið þróuð maður fyrir borð björgunarnet sem byggja á klifurtækni, vogarafls tækni, vindutækni og háftækni, auk björgunarlína fyrir mismunandi gerðir báta og skipa.

Hafið samband ef ykkur vantar ráðleggingar varðandi val á búnaði, staðsetningu, frágang og æfingar í björgun manns úr sjó.

Við höfum þróaðar lausnir sem passa í allar gerðir báta, skipa og vinnusvæði við og á sjó. 


 
Markus Lifenet vörurnar eru hannaðar til notkunar við verstu aðstæðum á sjó

þegar hver sekúnda skiptir máli.

 
Fylgdu okkur á Facebook
Login



Thank you for your visit
footer - isl